Úr sendiráðinu til Grindavíkur www.mbl.is/frettir/innlent/2024/05/25/ur_sendiradinu_til_grindavikurPrivate View „Framvindan ræðst auðvitað af gangi náttúruaflanna, en ég hef fulla trú á því að í Grindavík verði aftur blómlegt samfélag. Svo er annað mál hvort bærinn verður eins og áður var. Við sjáum til,“ segir Árni Þór Sigurðsson. Hann er formaður framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ sem stofnað hefur verið til á vegum innviðaráðuneytisins.